.. og ég er svona eiginlega að byrja núna. Ég bjó til grænmetissúpu í matinn í gærkvöldi og í kvöld borðuðum við kjötsúpu. Ég veit svo sem að kjötsúpa er feit en ég ætla svona til að byrja með að skera aðeins niður kolvetnin og minnka brauð- og sykurátið. Það er eiginlega skelfilegt hvað ég hef borðað mikið brauð og nammi upp á síðkastið!
Sjáum hvort það skili góðri tölu næsta sunnudag.
Kv. B

1 comment
Comments feed for this article
4 júní, 2008 kl. 12:50 pm
missfiskur
Hæ hæ takk fyrir kommentið á síðuna mína. langt síðan þú bloggaðir hvernig gengur?