Jæja þá er bara að kýla á bloggið.
Ég er eins og svo margir aðrir að burðast með of mörg kíló á mínum annars íðilfagra kroppi
Ég er svo sem ekki komin með neitt plan ennþá hvernig ég hyggst taka mig á en held það geti verið sniðugt að byrja að blogga um eitt og annað sem snýr að þessu átaki mínu. Það eitt og sér er nú svolítið mikið aðhald!
Ef ég væri 11,5 kílóum léttari væri ég í kjörþyngd og því verður það markmiðið mitt á næstu vikum/mánuðum.
Ég stefni að því á næstunni að setja upp fleiri síður á bloggið með frekari upplýsingum um mig, þyngd og áfangamarkmiðum.
Kveðja,
Baldintáta

1 comment
Comments feed for this article
18 maí, 2008 kl. 11:52 pm
15kg
Velkomin í átaksbloggheima
Mun fylgjast með þér, gangi þér vel.