Já já þetta gengur nú ekki alveg glimrandi hjá mér. Ég stend þó í stað og fer ekki upp á meðan.

Við förum svo í sumarbústað í 3 nætur frá og með föstudeginum þannig að ég mun vera mjög glöð ef ég stend í stað eftir þessa viku ;)

Sumarbústaðarferðin gekk vel og þótt svo að ég hafi ekki borðað 100% hollustu þá var heldur ekki sukkað endalaust. Vigtin sagði líka 73,9 í morgun þannig að ég er á sama stað og fyrir 2 vikum.

Best að fara út í góða veðrið :)

Þá er ferðinni heitið enn og aftur í sumarbústað. Reyndar verðum við bara eina nótt í þetta skiptið og það verður hollari matur með í för heldur en síðustu helgi ;) Ég er nefnilega búin að vera voða dugleg í vikunni og ætla mér ekki að eyðileggja það með sólarhringsskreppitúr.

Góða helgi!

Þá er ég komin heim úr sumarbústaðarferð þar sem lítið var um skynsemi þegar kom að matarmálum og niðurstaðan er 1 kíló upp! 74,8.

Jæja en nú er ég dugleg og missi þetta kíló bara í þessari viku!

Það fór heilt kíló í þessari viku! Ég er ekkert smá ánægð :)

Og þá er bara að vera dugleg áfram.

Hellú!

Ég er sko ekki hætt þótt ég hafi ekki verið dugleg að uppfæra þessa síðu. Það eru allir búnir að vera lasnir á þessu heimili en ég hef þó að mestu haldið mig frá sætindum og minnkað brauðið töluvert.

Það fóru 700 gr í síðustu viku og svo er vigtun í fyrramálið og ég vona að ég sé nú eitthvað léttari.

Ég læt vita á morgun hvað vigtin segir.

Adios :)

.. og ég er svona eiginlega að byrja núna. Ég bjó til grænmetissúpu í matinn í gærkvöldi og í kvöld borðuðum við kjötsúpu. Ég veit svo sem að kjötsúpa er feit en ég ætla svona til að byrja með að skera aðeins niður kolvetnin og minnka brauð- og sykurátið. Það er eiginlega skelfilegt hvað ég hef borðað mikið brauð og nammi upp á síðkastið!

Sjáum hvort það skili góðri tölu næsta sunnudag.

Kv. B

Jæja þá er bara að kýla á bloggið.

Ég er eins og svo margir aðrir að burðast með of mörg kíló á mínum annars íðilfagra kroppi ;) Ég er svo sem ekki komin með neitt plan ennþá hvernig ég hyggst taka mig á en held það geti verið sniðugt að byrja að blogga um eitt og annað sem snýr að þessu átaki mínu. Það eitt og sér er nú svolítið mikið aðhald!

Ef ég væri 11,5 kílóum léttari væri ég í kjörþyngd og því verður það markmiðið mitt á næstu vikum/mánuðum.

Ég stefni að því á næstunni að setja upp fleiri síður á bloggið með frekari upplýsingum um mig, þyngd og áfangamarkmiðum.

Kveðja,

Baldintáta

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.